Thursday 29 August 2013

Ljúfa haust...

Skólinn er handan við hornið og því fylgir alltaf svo mikill haustfílingur. Sumarið er búið að líða alveg ótrúlega hratt og ég hefði alveg verið til í aðeins fleiri sólardaga, en nú er ég alveg orðin sátt við að haustið sé komið. Því fylgir alltaf svo mikil kósýheit, kaffi, te, lestur og lærdómur, kertaljós og kúr. Þó svo að ég sé alveg skelfileg kuldaskræfa þá er eitthvað heillandi við þykka trefla, stígvél og rjóðar kinnar haustsins :) Vonandi fer samt ekki að snjóa alveg strax svo að léttari haustkápur og jakkar fái að njóta sín aðeins áður en úlpan tekur öll völd! 










Kósý-tímar framundan... love it!
-Arr Kay BB